Þjóðviljinn - 15.08.1964, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. ágúst 1964 -
Enn óeirðir
í Paterson
PATERSON 14/8 — Yfirvöldin
í Paterson í New Jersey skýrðu
svo frá í dag, að svo virðist sem
kynþáttaóeirðimar í borginni
séu í rénun. Á fimmtudags-
kvöld var þó lögreglubíll
skemmdur allmikið og 36 manns
voru handteknir. Meðal þeirra
voru 12 unglingar og einn hvítur
maður. Allmargar rúður voru
brotnar og eldur kom upp á
einum stað.
1 Elizabeth, sem er bær um
þrjá km fyrir sunnan Paterson,
voru einnig óeirðir aðfaranótt
föstudags og lögreglan ruddi göt-
umar fólki.
H6ÐVI1IINN
StDA
Kosmos 37. er
kominn á loft
MOSKVU 14/8 Sovéifeir vís-
indamenn sendu á föstudag á
loft nýjan gervihnött, Kosmos
37. og er honum ætlað að afla
vísindalegra upplýsinga úr há-
loftunum. Jafnframt þessu er
uppi í Moskvu hávær orðrómur
þess efnis, að innan skamms
muni Sovétríkin senda á loft
mannað geimfar.
Kosmos 37. notar 90 mínútur
til hringfarar sinnar umhverf-
is jörðu og er mesta jarðnánd
hans 300 km. Tass-fréttastofan
skýrir svo frá, að öll tæki gervi-
hnattarins starfi sem bezt verði
á kosið
Flugslys
Eramhald af 1. síðu.
stóru svæði í nágrenni Þrengsla-
vegarins þar sem síðast heyrðist
til vélarinnar af vegagerðar-
mönnum.
1 gœrmorgun snemma fór
þokunni heldur að létta og
skömmu síðar fannst flugvélar-
fíakiðr eins og áður segir sunri-
anvert í Litla-Meitli. Hafði vél-
in'‘tTæfð^s'undur við áreksturinn
ög *er talið að flugmaðurinn hafi
látizt strax. Eldur hafði komið
upp í flakinu og var það mik-
ið brunnið.
Flugmaðurinn sem fórst hét
Elmer Robert Daniels kunnur
knattspyrnumaður í Þrótti, var
hann 21 árs að aldri. Hann var
sonur Steinþóru Steinþórsdótt.
ur og Elmer Roberts. Er móðir
hans búsett í Minneapolis í
Bandarikjunum en hér dvaldist
hann hjá ömmu sinni, Hafði
hann lokið einkaflugmanns-
prófi úr flugskóla Flugsýnar í
vor. Hafði hann fengið flugvél-
ina leigða hjá Flugsýn í þessa
Vestmannaeyjaferð. Var þetta
tveggja sæta vél af gerðinni
Cessna 140.
Palmiro Togliatti liggur nú
alvarlega sjúkur á Krím
MOSKYU 14/8 — Palmiro Togliatti, leiðtogi
ítalskra kommúnista, er nú alvarlega veikur og
hefur fengið heilablóðfall. Togliatti er um þessar
mundir staddur á Krím, en þar hefur hann dval-
izt undanfarið sér til heilsubótar. Mario Spalloni,
einkalæknir Togliattis, hefur flogið frá Róm til
Sovétríkjanna til þess að annast sjúklinginn. í
Moskvu er uppi orðrómur þess efnis, að Krústj-
off, forsætisráðherra Sovétríkjanna, muni snúa
heim úr ferð sinni til landbúnaðarhéraða Sovétríkj-
anna og halda til funda við hinn ítalska kommún-
istaleiðtoga.
Það var seint á fimmtudag,
sem fyrstu fréttir bárust af veik-
indum Togliattis og þá frá Róm.
Á föstudag gaf svo utanríkis-
ráðuneyti Sovétrikjanna út til-
kynningu þar sem frá því var
skýrt, að Togliatti hefði fengið
heilablóðfall og væri þungt
haldinn. Togliatti var i heim-
sókn í ungherjabúðum í nánd
við Jalta þegar veikindi hans
bar að höndum.
Lömun
Fremstu læknar Sovétríkj-
anna héldu þegar til Krím er
fréttin barst um veikindi Togli-
attis. Einkalæknir hans flaug
þegar til Sovétríkjanna, svo sem
fyrr var sagt. Var í för með hon-
um Luigi Longo, ritari Komm-
únistaflokks Italíu, og hafði
vamarmálaráðuneyti ftalíu lát-
ið þeim í té flugvél til fararinn-
ar. Síðari hluta föstudags til-
kynnti utanríkisráðuneyti Sov-
étríkjanna, að líðan Togliattis
væri öilu betri, Talsmaður
Kommúnistaflokks Ítalíu sagði
hinsvegar, að líðan hans væri
óbreytt og hefðu fréttir borizt
af því, að Togliatti lægi meðvit-
undarlaus og virtist vera um
lömun að ræða.
Mikilvæg för
Palmiro Togliatti er Sem
kunnugt er leiðtogi stærsta
kommúnistaflokks hinna borg-
aralegu landa og hefur um ára-
tugi verið einn helzti forustu-
maður hinnar alþjóðlegu verka-
lýðshreyfingar. Enda þótt svo
væri ákveðið, að hann færi til
Sovétríkjanna í orlofi sínu og
sér til heilsubótar, hefur það
verið almennt álit, að hann
hygðist um leið ræða við leið-
toga Sovétríkjanna um heims-
ráðstefnu kommúnista, sem fyr-
irhuguð er á miðju næsta ári.
Hefur margt reynt
Togliatti er nú 71 árs að aldri
og hefur oftlega áður sloppið
naumlega úr dauð^ns greipum.
Refsivert
að ferðast
til Kúbu
WASHINGTON 14/8 —
Bandariska utanríkisráðai-
neytið hefur ákveðið að
svipta 84 bandaríska stúd-
enta vegabréfi sinu er þeir
snúa heim frá Kúbu.
Bandaríska stjórnin hefur
neitað öllum þegnum sín-
um að ferðast til eyjarinn-
ar, en stúdentarnir hlýðn-
uðust ekki því banni og
héldu til Kúbu í boði
stjórnarinnar þar, með fyrr-
greindum afleiðingum. Ekki
er enn kunnugt, hvort
gripið verður til annarra
refsiaðgerða gegn stúd-
entunum.
Bermuda-Akureyri
Framhald af 4. síðu.
ig góður og miðherjinn Phlpobt
var alltaf hættulegur, og eins
og fyrr segir hefur þetta ef tíl
vill verið bezti leikur þeirra í
þessari heimsókn. Það var Mka
athyglisvert að ekki sá á þeim
þreytumerki nema síður væri,
og þó höfðu þeir leikið tvo
erfiða leiki í röð.
Dómari var Magnús Péturs-
son og gerði það vel, enda létt-
ur leikur við að fást. Þama
voru áhorfend'ur frá Akureyri
auðvitað og öllum nærliggjandi
héruðum.
Þess má geta að flug lokaðist
þetta kvöld og fór liðið þá
þegar um kvöldið með lang-
ferðabifreið til Reykjavíkur. og
var það glaður hópur sem lagði
af stað, en smátt og smátt
hljóðnaði söngurinn, og þegar
maður litaðist um í bifreiðinni
sátu hlið við hlið hvítir og
svartir, engar kynþáttaerjur,
allt hljótt. bara sofið!
Frímann.
Bikarkeppni KSÍ var haldið
áfram í fyrrakvöld og léku þá
FH og Breiðablik suður í Hafn-
arfirði. Breiðablik sigraði eftir
jafnan leik með þrem mörkum
gegn tveimur, í hálfleik stóð
1:1. Eru þá bæði Hafnarfjarð-
arfélögin Haukar og FH fallin
úr keppninni. Næsti leikur í
bikarkeppninni verður í dag í
Vestmannaeyjum, þar keppa
IBV og 1A — b.
STJÖRNUBlÖ
Maðurinn með
andlitin tvö
Robert Louis Stevenson
var rómantískur maður og
hafði gaman af ,,gátum sál-
arlífsins". Hann skrifaði
söguna um Dr. Jekyll og
Mr. Hyde. Hún var að sjálf-
sögðu ekki merkasta framlag
þeirra tíma til lýsingar á
klofnum persónleika, til tví-
faratímans, en Stevenson var
fjörlegur frásögumaður og
sagan hefur verið vinsæl og
hún hefur nokkrum sinnum
verið kvikmynduð.
Nýtt tilbrigði við þessa
sögu er sýnt í Stjörnubíói.
Dr. Jekyll er hér ákaflega
þrúgaður maður og misskil-
inn og misnotaður. Það virð-
ist því ósköp nærtækt fyrir
hann að breytast í Hr. Hyde
svo sem í sjálfsvarnarskyni.
Hyde er, sem kunnugt er.
algjört illmenni. en það er
í rauninni sáralíti'll munur
á honum og öðru fólki sem
fram kemur í myndinni, og
það á í raun og veru ekki
betri félagsskap skilinn.
En það versta við allt sam-
an er, að algjör illmenni eru
enn leiðinlegri en dýrlingar,
þótt undirlegt megi virðast.
Höfundar þessarar mjmdar
leggja sig mjög fram um að
terrorisera mannfólkið:
gleðikonur stíga san-san af
miklum hamagangi, í næsta
herbergi er Jekyll-Hydé að
nauðga eiginkonu sinni og
þar rétt hjá er eiturslanga
að drepa elskhuga konunnar.
Það vantar ekki krydd í súp-
una.
Myndin er gerð af miklum
fyrirgangi og fátækt. Á.B.
Ath.: — 1 auglýsingu stend-
ur, að myndin sé „um hinn
fræga dr. Jekyll“ og sé ,,Ein
af hans mest spennandi
myndurn". Halda menn að
hér sé einhverskonar Tarzan
á ferð?
Vatnafræðingar
orði á framkvæmd mótsins í
heild.
Sameíginlegt vandamál
Finnski fulltrúinn, sem talaði
á blaðamannafundinum var AIl-
an Sirén. Sagði hann að sam-
starf á þessu sviði á milli Norð-
urlandanna væri afar mikilvægt
einkum fyrir þær sakir, að þau
ættu við svipuð vandamál að
stríða svo sem vetrarkuldann ,og
ísinn.
Norðmaðurinn sem hafði orð
fyrir félögum sínum var Jakob
Otnes. Sagði hann að koman til
Islands væri mjög ánægjuleg og
einkum fyrir Norðmenn. sem
ættu margt líkt með Islending-
um.
Jörgen Lundagcr Jensen hafði
orð fyrir Dönunum og sagði
hann, að Danir ættu við ýmis
vandamál að etja sem ekki
þekktust á hinum Norðurlönd-
unum. Væri þar einkum að
nefna, að hjá Dönum væri enga
vatnsorku að finna og ennfrem-
ur væru allstór svæði í Dan-
mörku þar sem ekki væri unnt
að ná í vatn nema með borun-
um eftir neðanjarðarvatni.
Svíinn Gunnar Nybrant lýsti
yfir ánægju sinni með komuna
til Islands og skýrði svo frá því.
sem helzt er á döfinni í þessum
málum í Sviþjóð.
Tilgangur vatnafræðinnar
Sigurjón Rist skýrði fyrir
blaðamönnum tilgang vatnafræð-
innar og viðfangsefni. Sigurjón
sagði að vatnafræðin væri fyrst
og fremst rannsókn á hringrás
vatnsins, þegar það fellur til
jarðarinnar, gufar upp og fell-
ur aftur o.s.frv. Einnig væri í
verkahring vatnafræðinnar allt,
sem viðkemur daglegri notkun
vatnsins.
Blaðamaður ræddi við full-
trúa ráðstefnunnar í gær og
tuku þeir allir miklu lofsorði á
framkvæmd hennar og móttök-
ur. íslenzku fulltrúamir lýstu
sérstakri ánægju sinni með hina
ómetanlegu þýðingu, sem slík
ráðstefna hefði fyrir þá. Þarna
væru til umræðu vinnuaðferðir
fyrir rannsóknir á sviðum vatna-
fræðinnar, sem yrðu þeim síðan
stuðningur og jafnvél tilsögn í
starfinu.
Palmiro Togliatti.
Hann komst nauðuglega undan
byssukúlum ‘fasista á Ítalíu og
slapp frá Madrid aðeins fáum
klukkustundum áður en her-
sveitir Francos tóku borgina.
Stúdent einn hæfði hann þrem
kúlurn árið 1948, en Togliatti
lifði skotin af og einnig bif-
reiðarslys, sem hann lenti í
tveim árum seinna. Einnig hef-
ur Togliatti gengizt undir heila-
uppskurð.
Samúðarskeyti
AFP-fréttastofan skýrir svo
frá, að Saragat, utanríkisráð-
herra Ítalíu, hafi fyrirskipað
italska sendiráðinu í Moskvu að
veita Togliat.ti alla hugsanlega
aðstoð. Þá hefur forseti ftalíu
sent Kommúnistaflokki ftalíu
skeyti þar sem hann lætur í
ljós þá von, að Togliatti nái
heilsu sinni aftur.
Þessi kúlu-
penni er
nýjung á
heims-
markaðnum
Seldur um
allt land
epoca
Með einu símtali í dag
getiö þér tryggt framtíö yðar -
á morgun getur það verið of
seint. Hringíð f síma 17700
og ræðið viö „Almennar” um
tryggingar.
ALMENNAR
TRYGGINGARf
PÓSTHÚSSTRÆTI 3
SlMI 17700
HOFUM OPNAÐ
BUKKSMIÐJU
að Múla við Suðurlandsbraut. Sími 32960.
Framkvæmum alla blikksmiðjuvinnu. — Allt unn-
ið af fagmönnum.
H.F. BORGARBLIKKSMIÐJAN.
Sími 32960.
Frá Sjúkrasamlagi
Reykjavikur
Frá 1. september, næstkomandi, hættir
Eggert Steinþórsson, læknir,
störfum sem heimilislæknir, þar sem hann hefir
verið ráðinn trúnaðarlæknir samlagsins frá þeim
tíma.
Þá hefir
Friðrik Bjömsson, læknir,
látið af störfum sem heimilislæknir og háls- nef-
og eyrnalæknir.
Samlagsmenn þessara lækna þurfa að snúa sér til
afgreiðslu samlagsins hið fyrsta, hafa samlagsskír-
teini sín með sér og velja sér lækna í þeirra stað-
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
á